Færsluflokkur: Bloggar
Mánudagur, 15. október 2007
Gamli góði Villi: Er ekki kominn tími til að hætta að syngja?
Í ljósi þeirra vandræða sem Gamli góði Villi hefur nú ratað í rifjaðist upp fyrir mér góð dæmisaga um lítinn fugl sem lagði af stað á köldum haustmorgni til heitari landa. Allir hinir fuglarnir voru löngu flognir en fuglinn okkar drollað í reyniberjatrjánum lengur en góðu hófi gegndi. Og honum var kalt á fluginu, ósköp kalt. Honum var svo kalt að hann missti flugið og nauðlenti á sölnuðu túni. Þar var nautahjörð á beit. Stórt naut gekk til litla fuglsins og spurði hvað hann væri að gera þarna. "Ó, mér er svo kalt og ég held að ég geti ekki flogið áfram og deyji hérna". "Ég skal hlýja þér sagði nautið" sneri sér við og skeit stórri, risastórri kúadellu yfir litla fuglinn. Hann greip andann á lofti og barðist um þar til hann gat stungið höfðinu upp úr dellunni. Og þá fann hann hlýjuna úr kúadellunni umlykja sig allan og eftir smástund þá leið honum svo vel að hann fór að syngja hástöfum, svona rétt eins og það væri komið vor. En svo var ekki. Köttur bóndans heyrði sönginn og gekk út á túnið. Þegar hann sá litla fuglinn fastann í kúadellunni spurði hann smjaðurslega hvað amaði að. Litli fuglinn sagði honum alla söguna og sagðist vera pikkfastur í dellunni. "Ég skal hjálpa þér" sagði kötturinn og veiddi litla fuglinn upp úr dellunni. Þreif síðan af honum skítinn og það því búnu át hann fuglinn, mjálmaði af ánægju og hélt heim í hlýju bóndabæjarins.
Hvaða lærdóm getum við dregið af þessari sögu: Jú, við skulum ekki vera að drolla. Þeir sem gefa skít í mann þurfa ekki endilega að vera óvinir manns og þeir sem þykjast hjálpa og hreinsa af manni skítinn þurfa ekki endilega að vera vinir manns. EN UMFRAM ALLT: Ef maður er í djúpum skít er ekki skynsamlegt að hafa hátt!
Gamli góði Villi: Hættu að syngja. Það fer þér best nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 10. október 2007
Álftnesingar vaknið! Hvað er búið að gera við verðlaunatillöguna um skipulag miðsvæðisins?
Í sveitartjórnarkosningum 2006 var hart tekist á um skipulagsmál svokallaðs miðsvæðis á Álftanesi. Þar var samþykkt skipulagstillaga rökkuð niður af andstæðingum D-listans og sögð mótast fyrst og fremst af hagsmunum lóðabraskara og verktaka, talað var um "massíva háhýsabyggð" og annað í þeim dúr. Skipulagið átti að vera nánast mannfjandsamlegt. Þetta fólk talaði fjálglega um íbúalýðræði, vistvæna lágreista byggð sem ætti að hæfa hinu náttúruvæna Álftanesi. Lofað var arkitektasamkeppni þar sem "raddir íbúa" fengju að njóta sín og lýðræðisástin yrði í hávegum höfð við meðferð málsins. Grimmúðleg ófrægingarherferð var sett í gang og bæjarstjóri og bæjarstjórn rökkuð niður þar sem nánast öll þeirra hegðun og gerðir voru gerð tortryggileg eins og frekast var kostur.
D-listinn lagði málið undir í kosningum og tapaði. Svo einfalt var það nú. Nýjir valdhafar settust í stólana og ný skyldi efna loforðin. Vissulega var samkeppni sett af stað um miðsvæðið. Margar áhugaverðar tillögur bárust en það var samdóma niðurstaða dómnefndar að tillaga Gassa arkitekta væri best. Í framhaldi af því voru þeir fengnir til að útfæra tillögur sínar nánar.
Nú beið ég spenntur eftir íbúalýðræðinu. Alltaf verið spenntur fyrir svoleiðis. Sérstaklega þegar gamlir kommar tala þannig. Einhver bið hefur nú orðið á þessu lýðræði. Kynningin hefur verið afskaplega einhliða og í algjöru skötulíki. Bæklingar bornir til fólks þar sem kort og myndir voru svo ógreinilega að vart var hægt greina þar hismi frá kjarna. Einn kynningarfundur var haldinn í september sem var þess eðlis að hann vakti upp fleiri spurningar en hann svaraði. Ekki hefur verið hægt að sjá nein merki um svokallaða lýðræðisást valdhafanna og ekki var einu sinni haft fyrir því að leggja málið í vinnuferli hjá byggingar og skipulagsnefnd fyrr en 4. okt. s.l.
Á morgun er boðaður fundur nefndarinnar þar sem á að afgreiða málið úr nefndinni og síðar um daginn kl. 17:30 er boðað til fundar bæjarstjórnar þar sem á að afgreiða tillöguna. Þegar tillagan er skoðuð kemur í ljós og stórfelldar breytingar hafa verið gerðar á verðlaunatillögunni. Nú á að loka Breiðumýri að sunnanverðu þannig að stærstur hluti umferðar inn og út af svæðinu fer um Skólaveginn. Þar er hann lagður um baklóðir íbúa við Suðurtún sem að auki þurfa að taka bensínstöð upp að húsveggnum. Austur og suðurlóðir við Suðurtún hafa þótt einstaklega eftirsóknarverðar vegna einstaks óskerts útsýnis til Bessastaða,nágrannasveitarfélaganna og fjallahringurinn í austri blasir við. Nú á að eyðileggja þetta með "massífum" blokkabyggingum meðfram Norðurnesveginu og til að bæta gráu ofan á svart eru þær skásettar þannig að útsýnið verður alveg tekið. Í þessari tillögu er aldeilis ekki minni "háhýsa"byggð en í þeirri fyrri. Þvert á móti auk þessa hryllilega náttúruhúss sem áætlað er að byggja gengt Bessastöðum.
Ef þessu fólki var einhver alvara með fjasi sínu um samráð og íbúalýðræði af hverju er þá ekki íbúunum treystandi til að taka ákvörðum um skipulagstillögurnar. Þá sem er í gildi og þá sem ætlunin er að samþykkja á morgun.
Ég skora á ykkur, ráðandi meirihluta að standa ykkar plikt í því efni. Þið getið ekki hagað ykkur eins og nashyrningur í glervörubúð. Kannski þið séuð farin að átta ykkur á að þið munuð ekki eiga neitt framhaldslíf sem valdhafar eftir næstu kosningar. Ef svo er þá skýrir það margt.
Ég hvet fólk til að láta í sér heyra og láta ekki hvað sem er yfir sig ganga. T.d. mætti mæta á bæjarstjórnarfundinn á morgun, 11. okt. Hann byrjar kl. 17:30 í hátíðasal íþróttamiðstöðvarinnar.
P.S. Rétt að vekja athygli á ansi beittum athugasemdum og upprifjunum á loforðum fyrir kosningarnar 2006.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 4. október 2007
Að þekkja góðan smið....
Sá er tvisvar mælir en sagar einu sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 2. október 2007
Blogg um blogg og bloggleiki - Tillaga til ritstjórnar
Núna ætla ég að brjóta loforð sem ég gaf sjálfum mér og öðrum en það var að ég skyldi aldrei blogga um bloggið. Er þá hægt að komast lengra í vitleysunni en blogga um blogg? Til að gera langa sögu stutta þá hefur ritstjórn bloggsins auðvelda' lesendum aðgengi að því sem efst er á baugi í bloggheimum með því að skipta færslum niður í flokka, ný blogg, heit blogg, vinsæl blogg o.sv.frv.
Nú ber svo við að þegar heitabloggs dálkurinn er opnaður þá blasa þar við 24 færslur. Helmingur þessara færslna eða 12 snúast um leik sem ágætur bloggverji, Kalli Tomm, ýtti úr vör fyrir nokkru. Ekki það að þessi leikur eigi ekki rétt á sér. Síður en svo. Hins vegar er hann orðinn svo útbreiddur og kvíslast um allt moggabloggið að hann lítur orðið út eins og einhvert æxli.
Ég legg því til við ritstjórn bloggsins og búinn verði til sér dálkur fyrir bloggleiki. Þar hafa þá þeir sitt sem þar hafa áhugann en truflar aðra minna sem eru kannski á svolítið öðrum nótum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Mánudagur, 1. október 2007
Myndu múslimskir alþingismenn tilbúnir að ganga til kirkju við þingsetningu?
Alþingismenn mættu í vinnuna í dag. Ég vona að sumarleyfið þeirra hafi verið vel heppnað. Ræður forsetana, Íslands og Alþingis voru athygliverðar, Ólafur skaut pólitískum skotum að vanda en í þessa sinn hitti hann markið. Meira um það síðar.
Umhugsunarvert er hvernig þingsetningin fer fram. Þá á ég fyrst og fremst við þann trúarlega svip sem þingsetningin hefur. Þessi ríkistrú sem við erum skikkuð að greiða fyrir er þarna í kompaníi með stjórnmálum sem ekki hefur þótt góð latína t.d. í löndum múslima. Þar finnst okkur forkastanlegt hvernig trú og stjórnmál blandast saman illu heilli oftast nær.
Á meðan forseti þjóðarinnar lætur sig hafa það að ganga til kirkju við hlið biskupsins með ríkisstjórn og þingheim að baki sér finnst mér tæpast hægt fordæma aðra fyrir það sama. Eru allir þingmenn kristnir? Allt í einu gætum við haft þingmenn sem væru annarar trúar. Væru þeir tilbúnir að ganga til kirkju og meðtaka þar erkibiskups boðskap?
Þrátt fyrir að vera sjálfur kristinn legg ég til að þessari kirkjugöngu þingheims verði hætt. Hún er einfaldlega ekki við hæfi. Stjórnmálum og trú á ekki að blanda saman.
Alls ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Föstudagur, 28. september 2007
Sýnum samstöðum og köllum landið réttu nafni - Burma
Þegar það loks gerist. Þegar það loks gerist. Almenningur í Burma með krúnrakaða Búddamunkana í broddi fylkingar rís upp gegn þeirri grimmdar harðstjórn sem ríkt hefur um alltof mörg ár. Harðstjórar hersins sem haldið hafa völdum með tilstyrk annarar harðstjórnar, þeirrar er ræður öllu í Kína.
Þessir harðstjórar hafa breytt nafni landsins í Mjanmar auk þess að breyta nafni höfuðborgarinnar Rangoon. Þessi nýju nöfn eru táknmyndir stjórnarherranna og fólkinu í landinu alls ekki töm. Ég skora á bloggverja, fjölmiðlamenn og ekki síst stjórnmálamenn að sýna íbúum þessa hrjáða lands þá virðingu að kalla það réttu nafni - Burma.
Það væri örlítill samstöðuvottur í baráttunni fyrir betra lífi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 27. september 2007
Eru við sjálfbjarga til að bjarga stórskipum
Alltaf er ástæða til að gleðjast þegar svona vandræði enda vel og báturinn kominn í öruggt tog hjá björgunarskipinu Gunnari Friðrikssyni. Þarna hafði getað farið ver og enn og aftur eru björgunarskip Landsbjargar að sanna gildi sitt.
Hitt veldur mér ónotum að vita af stórum skipum sem nú eru farin að sigla vestur fyrir landið og við eigum engin björgunartæki til að bregðast við ef illa fer. Varðskipin lítil og úrelt og þó svo að nýtt varðskip kæmi til ræður það engan veginn við stóru olíuskipin sem koma úr Barentshafinu. Erum við tilbúin að horfa upp á slíka skaða án þess að fá rönd við reist?
Með auknum siglingum um sundið milli Íslands og Grænlands er okkur algjör nauðsyn að huga að því að eignast björgunarskip sem gæti tekið svona stórskip í tog.
![]() |
Gunnar Friðriksson kominn að báti sem bilaði í Jökulfjörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 27. september 2007
Það er gott að geta kennt kettinum um...
...er stundum sagt um klénar, ódýrar afsakanir á einhverju klúðri. Gæti hugsast að þarna valdi skuldastaða fyrirtækisins meira um en niðurskurður þorskkvóta? Talsvert hefur verið fjallað um brotthvarf stjórnenda félagsins og sölu á eignarhlut þeirra og í framhaldi hafi núverandi eigendur skuldsett fyrirtækið svo mikið að það megni ekki að sporna við áföllum sem þessum. Verðmæti fyrirtækisins hafi fyrst og fremst verið mælt upp af kvótaeign og því sé þetta meira en reksturinn þoli.
Staða Eskju er því miður ekkert einsdæmi. Verðlagning kvóta er öllum óskiljanleg og ávöxtun fjármuna sem lagðir eru til slíkra kaupa neikvæð, þ.e. ef kaupandinn ætlar að nýta sér kvótann. Talsvert hefur hins vegar verið með hreint og klárt brask með kvótann og því sitja þeir sem raunverulega ætla sér að nýta hann uppi með sárt ennið. Ég spái því að á næstunni muni hvert útgerðarfyrirtækið af öðru draga saman seglin og jafnvel hætta rekstri.
Ætla má að við slíkar aðstæður muni verð á kvóta falla mjög. Ekki öfunda ég þá sem fjárfest hafa í þessar dellu og sitja í súpunni núna. Þetta staða er klár afleiðing af sérhagsmunastefnu stjórnmálamanna sem skömmtuðu kvótann á sínum tíma til einnar stéttar manna, útgerðarmanna. Spurningunni um hvers vegna það var gert og hverjir högnuðust á því hefur ekki verið svarað.
Var svo einhver að tala um spillingarlaust Ísland?
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Lifandi herðatré - tízkuljóminn hver?
Lengi hef ég horft í forundran og með óhug á tízkusýningar í sjónvarpi þar sem grindhoraðar, vannærðar stúlkur ganga fram bryggjuna með einkar ankannalegu göngulagi þar sem öðrum fæti er sveiflað fram fyrir hinn. Svona gengur eðlilegt heilbrigt fólk alls ekki og því verður þetta, hjákátlegt svo ekki sé meira sagt. Fleira er hjákátlegt eða réttara sagt sorglegt við þessar sýningar.
Vöxtur þessar stúlkna er líkastur því sem maður sér fyrir jólin ár hvert af hungruðum börnum Afríku þegar hjálparstofnanir biðla til ríkra feitra Vesturlandabúa um nokkar krónur til hjálpar hungruðum heimi. Þessi vöxtur virðist hafa hentað tízkuhúsunum einkar vel þar sem þær (stúlkurnar) virðast allar af staðlaðri stærð og bera fötin álíka vel eins og herðavír (herðatré). Þar með eru þessi grey orðin að fyrirmyndum stúlkubarna um allan heim sem reyna eftir mætti að tileinka sér útlit og lífstíl fyrirsætanna. Ekki gramm af fitu ofan í kroppinn sem síðan er píndur í tækjasölum vorldklass og annara slíkra stöðva sem gera beinlínis út á ímyndina.
Afleiðingin blasir við á þessari áhrifaríku ljósmynd Oliviero Toscani sem hann tók fyrir tízkuhúsið Flash & Partner´s í Mílanó. Myndin sýnir á átakanlegan hátt mannlega eymd stúlku sem óprúttnir tízkudólgar hafa skapað henni og fjölda annara ungra stúlkna. Átröskunarsjúkdómar leggja þær að velli auk geðrænna vandamála sem fylgja þessum lífsmáta. Hiklaust má bera afleiðingar þessa lífsstíls við afleiðingar fíkniefnaneyslu.
Sem betur fer virðast sum tízkuhúsanna vera að snúa við blaðinu og velja fyrirsætur sem hafa eðlilegan líkamsvöxt. Þó verður við ramman reip að draga vegna mótstöðu lífsstílsiðnaðarins sem sem vill reka alla inn í tækjasali, borða alls kyns "fæðubótar"glundur og þar með móta alla í sama horf. Þessi iðnaður veltir gífurlegum fjármunum í hinum vestræna heimi í dag og þessir menn munu ógjarnan vilja sjá af spæni úr þeim aski til annara hluta.
![]() |
Auglýsing vekur óhug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 22. september 2007
Etanól sem eldsneyti á bíla - Mikil losun köfnunarefnisoxíðs. Hvern er verið að blekkja?
Það er morgunljóst að ekki er allt sem sýnist. Fátt er hægt að segja manni til að koma á óvart. Þó sperrti ég bæði eyru við að hlusta á frétt RÚV um brennslu svonefnds lífræns eldsneytis. Þar kemur eftirfarandi fram:
Lífrænt eldsneyti sem unnið er úr repju og maís gefur frá sér meira af gróðurhúsa- lofttegundum en eldsneyti úr jarðefnum. Þetta kom fram við rannsókn vísindamanna í Bretlandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Munurinn var 70%með repjueldsneyti og 50% með maíseldsneyti. Aðrar tegundir gáfu frá sér minna en jarðefnaeldsneyti. Etanól úr maís er helsta lífræna eldsneytið í Bandaríkjunum en í Evrópu er 80% af öllu lífrænu eldsneyti unnið úr repju.
Þá spyr ég: Er verið að hafa okkur aftur að fífli, samanber vetnisvitleysuna sem reynt var að troða ofan í kokið á okkur?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)