Föstudagur, 16. mars 2007
Ábyrðarlausum olíufurstum skýlt með orðhengilshætti
Hér er komið nóg. Dettur einhverjum það í hug að þeim ágætu mönnum sem samkeppnislögin sömdu á sínum tíma hafi dottið þetta í hug. Að fyrirtæki hafi sjálfstæðan vilja! Að fyrirtæki hafi sjálfstæðan vilja!! Að fyrirtæki hafi sjálfstæðan vilja!!!
Fyrir mér lítur þetta svona út: Þarna eru dómarar að víkja sér undan þeirri ábyrgð að taka á glæpum stjórnenda þessara fyrirtækja með því að beita einhverjum þeim ótrúlegasta orðhengilshætti sem um getur í manna minnum. Með þessum orðhengilshætti á að fría stjórnendurnar sem hafa sjálfir hafa lýst á sig sök.
Skyldi sama regla eiga við í Baugsmálinu?
ÉG BARA SPYR??????
Ákæru á hendur forstjóra olíufélaga vísað frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Úr því er fyrirtækin hafa sjálfstæðan vilja þá getur löggjafinn sparað geysilegar upphæðir og nú hætta þeir þá að sjálfsögðu með Baugsmálið -- það gefur augaleið. Þannig hver er þá ábyrgur gagnvart því sem við gerum sjálf? Þurfum að finna það út!
Vilborg Eggertsdóttir, 16.3.2007 kl. 17:34
Já, þetta er algjörlega fáránleg túlkun. Það eru algjör nýmæli fyrir mér að stjórnendur beri enga ábyrgð á sínum fyrirtækjum og þeim gjörðum sem eru framkvæmdar í nafni þess. Til hvers eru þeir þá, spyr ég nú bara.
Þarfagreinir, 19.3.2007 kl. 17:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.