Að morgni fyrsta dags

Það alltaf svo sérstakt að koma út á nýjársdagsmorgun.  Dauðakyrrð, nánast engir bílar á götunum nema einstaka örþreyttur leigbílstjóri að aka síðustu gestunum heim úr áramótapartíunum.  Um stéttir og torg liggja raketturprik, útbrunnin stjörnuljós og skottertur.  Enn er reykjareimur í loftinu.  

Lögskipaður fánadagur í dag en það eru ekki margir sem hafa rifið sig upp úr koníaks og kampavínsþynnkunni til að draga þann bláa upp.  Frostið í nótt hefur myndað hrím og öllu og allt virðist svo ósnortið, kannski líkt og að morgni fyrsta dags.  

Fyrsta dags nýs árs.  Árs sem felur í sér hið óþekkta, sigra og sorgir, vonir og væntingar.  Síðasta ár er að baki og kemur ekki aftur hvort sem okkur líkar betur eða verr.  Við höldum inn í árið full bjartsýni og vona að það verði enn betra en það síðasta.

Ég þakka ykkur öllum fyrir gamla árið og óska ykkur gleðilegs árs 

 


Köld slóð

Settist með popp og kók í lúxussalinn í Smárabíó, hallaði mér aftur í sætinu og horfði á þessar illþolandi "trailera" sem allaf fylgja á undan myndunum.  Myndin er auglýst sem spennu- og hasarmynd en hún stendur tæplega undir því nafni.  Til þess er atburðarásin allt of hæg og framan af myndinn gerist allt of lítið.

Eftir hlé (sem er jafn illþolandi og treilerarnir) fara hlutirnir fyrst að gerast, söguefnið er gott en hér komum við að helsta veikleika íslenskra kvikmynda sem er lélegt handrit.  Ýmsir hlutir í sögunni ganga mjög illa upp eða eru fyrirsjáanlegir.  Það er margt í handritinu sem ekki virka.  Því miður.

Það margt vel gert þarna, myndatakan afbragðsgóð og leikmyndin mögnuð.  Þarna á Þröstur Leó afbragðsleik svo og þau Elva Ósk, Helgi Björns og Anita Briem.  Aftur á móti fannst mér Hjalti Rögnvaldsson ekki ná sér á flug í myndinni og hafa oft gert betur.

Þrátt fyrir ágallana eru kostirnir yfirgnæfandi í mínum huga og ber að hvetja alla sem vettlingi geta valdið að sjá hana.  Þó ekki nema til að sjá ofangreinda stórleikara fara á kostum. 

Góða skemmtun 


Að hengja feminista?

Af flestum fjölmiðlum má telja að Saddam Hussein kembi ekki hærurnar að morgni og svo sem hefur farið fé betra.  Hins vegar mætti telja að miðað við ástandið eins og það virðist vera í Írak að afskaplega misráðið sé að hengja karlinn núna.  Það hlýtur að vera nokkuð örugg aðferð að búa til píslarvott.  Menn skulu ekki gleyma því að karlinn á sér fjölda stuðningsmanna í hópi Sunníta, þeirra sem öllu réðu í valdatíð hans.  Þetta er tæplega það sem íraska þjóðin þarfnast núna.  

Innrásin og framhaldið af henni hlýtur að teljast einhverra skelfilegustu mistaka síðustu áratuga.  Nógu slæmt var ástandið fyrir þegar fjöldi bókstafstrúarmanna í hópi múslima hataðist úr í BNA og Breta.  Sú ótrúlega heimska að  halda að hægt sé að útrýma hryðjuverkum með stríði er orðin okkur dýr og á örugglega eftir að vera okkur enn dýrari þegar fram líða stundir.

Fyrir tveim árum hitti ég fullorðinn sænskan kaupsýslumann í Tyrklandi og átti við hann langt spjall.  Sá sænski stundaði nokkur viðskipti í Miðausturlöndum og við Persaflóann og sagðist farinn að þekkja nokkuð vel til eftir 30 ár á svæðinu.  Stjórnmálaástand sagði hann víða vera ótryggt og í arabaríkjunum ríktu soldánar sem væru hreinir og klárir einræðisherrar í ríkjum sínum.  Réttarfar eins og við Vesturlandabúar þekktum væri ekki til í þessum ríkjum nema helst þá í Írak og Jórdaníu.  Og þrátt fyrir mörg grimmdarverk Saddams hefði hann leitt landsmenn sína til mikilla framfara, fyrst og fremst með þvi að aðskilja ríki og trú, koma á skólaskyldu og auka heilsugæslu, banna konum að ganga með blæjur og körlum að taka sér margar konur.  Eins lögskipaði hann algert jafnrétti karla og kvenna.  Þessu framfylgdi karlinn og hirð hans af hörku sbr. fjöldmorð á Kúrdum og Shítum í Suður-Írak bera vitni um.

Þannig sagði sá sænski frá og færðist allur í aukanna þegar hann útnefndi Saddam feminista nr. 1 á svæðinu.  Þarna var mér nóg boðið og hætti að trúa.  Eftir heimkomuna fór ég að afla mér hlutlausra upplýsinga og komst að því að flest af því sem hann hafði sagt mér reyndist vera rétt.  Kvenfrelsi væri mun meira í Írak en nokkru öðru landi á þessum hluta jarðarinnar.   Svíinn sagði það grátlegt að horfa upp á eyðilegginguna og á örfáum mánuðum hefði BNA-mönnum og Bretum að skjóta og spengja landið nánast aftur í tíma um 50 - 60 ár.  Núna væri gósentíð hjá bóksstafstrúarmönnum og þarna stefndi beint í illvíga borgarstyrjöld milli sunníta og shíta.

Ekki datt mér í hug að segja þessum sænska vini mínum frá því að Íslendingar hefðu verið í hópi hinna staðföstu og sagt Írökum stríð á hendur.  Ég hreinlega skammaðist mín fyrir það.  Og viti menn, flest það sem hann sagði mér þarna fyrir tveim árum á hótelbar í Antayla í Tyrklandi hefur gengið eftir.

Svo þeir ætla að hengja feminista á morgun...... 


Þekkir þú einhvern sem hefur þurft að leita að?

Enn er vegið að björgunarsveitum landsins.  Þessar ómetanlegu sjálfboðaliðasveitir sem fjármagna sig að stórum hluta með flugeldasölu nokkra daga á ári.  Ég þekki það starf að eigin raun sem unnið er í sveitunum og þekki þann ódrepandi áhuga, elju og ósérhlífni sem þar ræður ríkjum.  Fjárhagslegur grundvöllur þeirra hefur verið flugeldasalan og um það hefur verið sátt áratugum saman í samfélaginu og þannig skuli það vera.  Björgunarsveitirnar hafa heldur ekki sótt í "sérmerktar" fjáraflanir annarra líknarsamtaka.

Nú er þessi sátt í uppnámi þar sem nokkrir einkaaðilar hafa séð sér hag í því að maka þarna krókinn.  Vissulega má finna marga vöruna sem er ódýrari en hjá Landsbjörgu.  Það er bara ekki málið.  Málið er að með kaupum á flugeldum hjá Landsbjörgu erum við að leggja okkar af mörkum til að tryggja okkar eigið öryggi svo og öryggi okkar nánustu.  Ég kaupi mína flugelda hjá Landsbjörgu með gleði, gleði yfir væntanlegri einkaflugeldasýningu í bakgarðinum heima og gleði yfir því að hafa lagt mitt af mörkum.  Að hverjum þarf að leita næst?  Þér? 


Skrípaleikur með skatta

Ég hlakka til þess dags þegar einhver stjórnmálasamtök eða menn afnema þann óréttláta skatt, tekjuskattinn.  Hann er óverulegur hluti skatttekna en leggst af ofurþunga á millitekjufólk.  Þessi skattur sem eru leifar af aldagamalli tíund er orðin hrein tímaskekkja í nútímaþjóðfélagi.

Sem sagt burtu með tekjuskattinn, setjum flatan undanþágulausan virðisaukaskatt og kreistum neðanjarðarhagkerfið upp yfirborðið.


mbl.is Skattur lækkar meðan gjöld hækka um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nágrannakærleikur Alcan

Mikið er nú gott að vera Hafnfirðingur og eiga Alcan að.  Þeir hugsa sko um sína menn (Hafnfirðinga) og til að gleðja hann Jón og aðra Hafnfirðinga sendi fyrirtækið honum og hinum Hafnfirðinginum upptöku af tónleikum næstbesta sonar Hafnarfjarðar þar sem hann söng með sinfó og alles um daginn.  Þar voru allir voða hrifnir og glaðir.

Getur nokkuð verið að Alcan sé að undirbúa ákvarðanatöku um stækkun álvers?  Þessi glaðningur og svo kannski krúttlegt páskaegg nr. 5 í vor breytir kannski afstöðu einhverra óákveðinna kjósenda?

Spyr sá er ekki veit.... 


Bílastæðasjóður. Þjónusta eða hvað...?

Brá mér ásamt konu og dóttur í bæinn á Þorláksmessukvöld, aðallega til að hitta frændfólk konunnar minnar og lykta aðeins af stemmingunni í bænum.  Þar sem Bílastæðasjóður Reykjavíkur er alltaf að auglýsa sig og sína góðu þjónustu ákvað ég að láta til leiðast og lagði bílnum í Ráðhúskjallaranum við Tjarnagötu.  Auk þess hafði sjóðurinn auglýst að frítt væri í öll bílastæðahús þennan mesta verslunardag ársins.

Þar stóð skýrt og skilmerkilega að húsið yrði opið til miðnættis.   Þegar við ætluðum að sækja bílinn og komum að dyrunum var komið fram yfir miðnætti, meira að segja heilar tvær mínútur.  Og viti menn auðvitað var hurðin að lokast þannig að við komust ekki inn.  Svo var reyndar um fleiri sem þarna voru að sækja bíla sína. 

Þegar átti að ræsa húsvörðinn í Ráðhúsinu svaraði hann ekki hringingu á dyrabjöllu.  Kannski hefur hann talið okkur vera einhverja fyllirafta því hann lét ógert að svara okkur þrátt fyrir að við sæjum hann innan dyra.  Þá var næst að hringja í neyðarnúmer Reykjavíkurborgar, 411 1111, en það var sama hversu mikið var reynt, aldrei fékkst samband nema við símsvarann, hvaðan elskuleg kvemannsrödd sagði: Ýttu á einn ef þú vilt... ýttu á 2 ef þú vilt... o.sv.fr.  Málið var bara að ekkert af þessum fínheitum virkaði.

Nú þar sem ætluðum ekki að gista undir vegg í Ráðhúsinu tókum við leigubíl heim á Álftanesið (sem auðvitað kostaði skildinginn).  Morgunin eftir fletti ég bílastæðasjóði upp á netinu þar sem kom fram að opið væri frá kl. 08:30 - 13:00.  OK, þá væri bara að láta skutla sér og ná í kvikindið.   Ónei, ekki var sopið kálið þótt í ausuna væri komið.  Ráðhúskjallarinn var harðlokaður og alveg eins og um kvöldið; það var ekki hægt að ná í neinn til svara.

Sem sagt urðu lyktir þær að bíllinn var í gíslingu Bílastæðasjóðs öll jólin og þegar ég kom til að ná í hann í morgun (og búið var að opna, vááá) beið mín 3790 króna skuld.  Ég var að sjálfsögðu ekki sáttur en fékk nú öllu þægilegri móttökur því núna gat ég talað við stæðavörðinn í eigin persónu, ekki símsvara.  Eftir að  hafa hlustað á þessar hrakfarir mínar féllst hann með semingi að hleypa mér út með því að búa til 80 króna kort þannig að ég kæmist nú út úr húsinu.  En loforð tók hann af mér að ég yrði að ræða þetta mál við varðstjóra í höfuðstöðvum sjóðsins sem og ég að sjálfsögðu gerði.

Eftir svona trakteringar veltir maður fyrir sér hugtakinu þjónusta, hvað er þjónusta og fyrir hverja er hún?


....og hversdagurinn er upp runninn

Þá eru hátíð munns og maga að baki og við tekur grámylgulegur hversdagsleikinn.  Annars voru þetta yndisleg jól´með fjölskyldunni, jólatré, hamborgarhrygg, jólagjöfum og alles.  Barnabörnin voru nærri drukknuð í jólagjafaflóðinu sem skall á eftir hrygginn.  Sem betur fer komu við þessi fullorðnu þeim til bjargar og drógu að landi.  Sem sagt sumar gjafanna flutu fram hjá í bili en eiga eftir að finnast á fjörum síðar. 

Á jóladag var hefðbundið fjölskylduboð og svo skreið minn maður undir sæng með Konungsbók Arnaldar.  Varð að leggja hana frá mér hálflesna þegar svefninn sótti að. 

Helgi Björnsson hagyrðingur á Snartarstöðum í Lundarreykjardal orðaði jólin ansi skemmtilega á jólakorti fyrir margt löngu síðan þegar við sátum í dönskutíma hjá Sveini Víkingi í Reykholtsskóla:

Hátíð þessi haldin er

til heiðurs munni og maga

megi græðgin gefa þér

góða jóladaga.

 

 


Rokrass

Veðrið er í aðalhlutverki þessa síðustu daga fyrir jól.  Núna er verið að spá enn einni skruggulægðinni upp að vesturströndinni.  Allur er varinn góður og við feðgarnir fórum og fjarlægðum grillið +/- 100 kg af sólpallinum.  Það er ekkert grín ef það fer af stað.  

Þetta er barasta ekkert jólaveður, hlýindi, rigningar og auð jörð í svartasta skammdeginu.  Mér finnst þetta langleiðinlegasti árstíminn, þetta eilífa myrkur.  Ég er maður ljóss og birtu og nýt mín í botn bjarta langa sumardaga.  Þetta gæti þó verið betra, bara ef það væri nú snjór.  Snjórinn lýsir upp og léttir skammdegið til muna en það ágæta hvíta stöff hefur varla sést hér síðustu 10 árin eða svo nema í sýnishornaformi.

Það er af sem áður var (að mig minnir) þegar oftast var snjór og frost á jólum.  Minn vetur á að vera frost og snjór, já mikill snjór, frá miðjum október fram í miðjan mars.  Þá má vorið koma með dírrindí og alles.  Þá kætist minn maður.

Tveir ljósir punktar:  Fyrst að dagurinn í dag var 1 sekúndu lengri en gærdagurinn og morgundagurinn verður 4 sekúndum lengri en dagurinn í dag.  Seinni punkturinn er að það eru að koma jól.  Jól með ljósum, smá andagt, samveru með fjölskyldu, borða á sig gat, taka við gjöfum og gefa gjafir.  Skríða upp í rúm með nýju bókina sem ég reif pappírinn utan af rétt áður og lesa mig í svefn....ZZZZZ 


Út úr Byrginu

Það var ekki gæfulegt að horfa á Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld.  Ég held að hverjum manni sé ljóst eftir þennan vitnisburð auk annars sem fram hefur komið að forstöðumaðurinn hefur meira en lítið af óhreinu mjöli í sínu pokahorni.  Það er grafalvarlegt mál og klárt brot á hegningarlögum að misnota sér traust skjólstæðinga sinna.  Hann var nú einu sinni forstöðumaður meðferðarheimilis eða hvað sem mál kalla það annars og svona haga menn í þeirri stöðu sér ekki.

Hitt er svo annað mál hver fjármálastjórnin hefur verið og hver sé ábyrgð stjórnmálamanna og embættismanna kerfisins á þeirri botnlausu óreiðu sem þar hefur viðgengist með fjármuni almennings.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband