Mánudagur, 10. nóvember 2008
Heiðarleiki stjórnmálamanns - Bjarna klúður Harðarsonar
Ég held ég muni aldrei eftir jafn snöggri gengisfellingu stjórnmálamanns eins og tölvupósklúður Bjarna Harðarsonar bloggvinar míns nú í kvöld. Hvað var Bjarni að hugsa, maðurinn sem prédikað hefur um hreinskiptni og heiðarleika í stjórnmálum.
Sér svo færi á koma klámhöggi á Valgerði sem lendir beint í eigin andliti. Þetta lýsir reyndar í hnotskurn íslenskum stjórnmálamönnum sem eru upp til hópa gjörspilltir eiginhagsmunaseggir. Bjarni á ekki annan kost en segja af sér strax í fyrramálið og biðjast opinberlega afsökunar.
Jólabókasalan er að byrja og best hjá Bjarna og fara aftur í bókabúðina sína.
Sér svo færi á koma klámhöggi á Valgerði sem lendir beint í eigin andliti. Þetta lýsir reyndar í hnotskurn íslenskum stjórnmálamönnum sem eru upp til hópa gjörspilltir eiginhagsmunaseggir. Bjarni á ekki annan kost en segja af sér strax í fyrramálið og biðjast opinberlega afsökunar.
Jólabókasalan er að byrja og best hjá Bjarna og fara aftur í bókabúðina sína.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Spaugilegt, Vefurinn | Facebook
Athugasemdir
já, hún er "yndisleg" þessi pólítík.
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 10.11.2008 kl. 22:45
Það kom þó eitt gott út úr þessu. Við fengum góða upprifjun á gjörðum pólítíkusa þegar þeir nánast gáfu bankana sem þjóðin átti og fengum mynd af gjörningsmönnum og -konum. Þarna er upphafið á kviksyndinu sem okkur hefur verið steypt í.
kolla (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 00:33
Að segja af sér er eina lausnin, verður samt gaman að sjá hvað gerist.
Gísli Foster Hjartarson, 11.11.2008 kl. 08:50
Bjarni hefur sagt af sér. Hárrétt ákvörðun hjá Bjarna að viðkenna mistök sína og axla ábyrgðina. Það mættu margir kollegar hans taka sér til fyrirmyndar.
Öllum verða á mistök. Það er mannsbragur að horfast í augu við þau og hafa kjark til að viðurkenna þau og taka afleiðingunum.
Bjarni er því maður af meiri.
Sveinn Ingi Lýðsson, 11.11.2008 kl. 10:23
Bjarna sem forsætisráðherra !!! :)
En í alvöru....eina ástæðan fyrir því að hann segir af sér er sú að hann skeit upp á bak í flokknum. Ef hann hefði verið að jarða þjóðina hefði hann fengið klapp á bakið hjá félögunum og setið sem fastast!
Hér er ekki lýðræði, hér er flokkahreppahrokarekstrarpólitík sem á sér enga hliðstæðu.
Ellert Júlíusson, 12.11.2008 kl. 15:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.