Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Föstudagur, 30. mars 2007
Náttúruleikskólinn Krakkakot - góð heimsókn
Að sjálfsögðu var ósköp notalegt að hitta afastelpu og strák og fá duglegt knús og koss á báðar kinnar. Þarna var mikill fjöldi, svo mikill fjöldi að vandasamt var að finna bílastæði. Leikskólafólk bauð upp á kaffi og með því um leið og við nutum samverunnar. Öll umgjörð og viðmót starfsfólks skólans bíður af sér góðan þokka og þarna eru börnin mjög ánægð. Í leikskólanum eru sterkar tilvísanir til umhverfis og þar eru haldin húsdýr til gagns og gleði fyrir börnin en löngu ljóst að umgengni við dýr er mjög þroskandi fyrir börn sem fullorðna.
Þetta var góð stund sem ber að þakka.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)